Prófíll

  • Nafn: Inga
  • Staður: Akureyri
  • Hjúskaparstaða: Gift
  • Um mig: hamingjusöm, stolt, ástfangin 3 barna móðir!

Auglýsing

er á lífi

23. september 2008 klukkan 01:09
búin að vera annsi léleg í net nennu seinustu vikur og hef annsi lítið haft að segja en nú mun það breytast og ég verð duglegri í framtíðinni að koma með nokkrar línur hér inn

löt bloggmús

03. júlí 2008 klukkan 00:49
Jæja sæl veriði hér er lata blogg músin að blogga.

 Ég er búin að vera ferlega ódugleg að virkja intranetið í tölvunni minni og hef lítið nennað yfir höfuð að blogga og skoða blogg og gera það sem maður vanalega gerir á netinu= hangsa......

  Ég kom ss til reykjavíkur með flugi í morgun. Vaknaði upp fyrir allar aldir og dreif mig á flugvellin komst að því að það var seinkun á flugvélinni svo ég beið ein í hálftíma eftir að Grétar fór.
   Síðan kom vélin og hún gerð reddy fyrir farþeganna.  Flugið var ágætt fram að seinustu 10 mínútunum þá kom ókyrrðin og ég hélt að hún væri að hrapa eða var allavega að pæla hvort að það væri ekki í lagi með flugmanninn hvort hann væri með meðvitund. Á sama tíma var ég búin að fullvissa mig um að stíga aldrei ALDREI upp í flugvél aftur :)

  Síðan kom ég heim til mömmu spjallaði og lagði mig smá og fór svo til læknis.
     Hún var óhress með þetta allt saman því að það eru svo brenglaðar tölur og hræðilegar sem komu úr blóðprufunni, ekki eins og við vildum hafa þetta.
  Fer í fyrrmálið að sækja fötu til að safna þvagi í sólarhring til að útiloka cushing sjúkdóminn. sem stafar af offramleiðslu á stresshormónum= cortisoli.
    Svo fer ég í blóðprufu eftir mánuð þegar ég er búin að vera laus við pilluna í mánuð til að hafa allar tölur á hreinu og fer líklega í segulómun til að gá hvort að það sé æxli í heiladinglinum.
   Svo hér er mikið að gerast og mikið sem þarf að vinna í.
  En ætlaði rétt að kikka inn og segja allt af létta.

 Við áttum yndislegan afmælis dag með trítlunum okkar. Þær eru búnar að vera eitthvað slappar greyjin og borða illa en allt að koma engu að síður.
 þær eru líka farnar að labba pínu og eru voða stoltar af sér. Ohh sakna allra krílanna minna.
    Talaði aðeins við Guðna í símann í kvöld og hann var of upptekinn til að tala.

   En þangað til næst mússí mússí

Aðeins of mikið nennilaus þessa dagana..

18. júní 2008 klukkan 16:46
  Úff ekkert búin að blogga og hef lítið að segja þannig þótt það sé búið að vera fullt að gera.....


    ég er nú meira og minna komin inn á moggabloggið og blogga þar þegar ég hef áhuga og smá að segja.

 stelpurnar verða 1 árs á morgunn. Jahérna.....

     Alveg er það furðulegt. Finnst svo stutt síðan ég lá og var að bora í nefið á mér af leiðindum á meðgöngudeild lansspítalans. Ekki búin að uppgötva að þar væri nettenging.
   En lét mig að sjálfsögðu hafa það til að halda börnunum mínum sem lengst inni í hlýjunni.
           
              Þessi mynd tekin á viku 32



 Næst er fyrsta myndin af Lilju.... ég fékk aldrei að sjá hana áður en hún fór upp þar sem hún átti erfitt með að anda fyrst




  svo er hér fyrsta myndin af Ólöfu.. hana fékk ég að sjá í 5 sex svo var hún rokin upp




 tæpum 3 tímum síðar fékk ég að sjá mýslurnar mínar--- loksins
fyrri myndin er Ólöf María  sú yngri




svo Lilja Guðrún sem var með glóðarauga eftir erfiðin...








2 vikna og á leiðinni heim



1 mánaða



Lilja Guðrún



        Ólöf María


2 mán





4 mán
 Lilja Guðrún




Ólöf María



5 mánaða

 Ólöf María



Lilja Guðrún



             6 mánaða





9 mán



Lilja Guðrún 11 mánaða





 Ólöf María 11 mánaða




 jæja nóg í bili bless bless

blogg leti, lífs leti, flutnings leti............... shit ég er að deyja úr leti

23. maí 2008 klukkan 00:39

 Hæhæ mega blogg leti hér á neti....

 Það sem er að frétta af mér er að ég fór í leghálsspeglun og greindist með leghálskrabbamein.
Gerð var STÓR keila en læknirinn var ekkert svo vongóður um að þetta hafi eða allt náðst. Það blæddi mikið  því að þetta er ennþá svo blóðríkt eftir að ég gekk með stelpurnar og fékk töflur til að hindra að mér blæði út.
  Fæ útkomuna eftir 2 vikur..... fer í legnám ef að hún er ekki nægilega sátt við útkomuna.

    Ég er bara búin að vera róleg heima með verki og aðrir að sjá um að taka upp börnin fyrir mig.
Núna um helgina kemur tengdó að hjálpa okkur að pakka og svo flytjum við dótið norður á mán og flytjum sjálf svo laugardaginn þar á eftir.

   get nú ekki sagt að áhuginn hjá mér fyrir flutningunum sé einhver. Og Langar mig engan veginn að flytja úr íbúðinni okkar sem að okkur líður svo vel í . En Grétar fékk verslunarstjórastöðu fyrir norðar launahækkun og svona og það er okkur að sjáfsögðu í hag. Og hvað gerir maður ekki til að fjölskyldan hafi færi á að lifa betra lífi í bili.þar sem að verðbólgan og staðan er ekki fólki í hag þessa mánuðina.
   En já flutningar....... æl ég hata að flytja og pakka........flytjum í 3 herb íbúð..........æl stelpurnar verða inni hjá okkur og Guðni með sérherbergi því hann er orðinn svo stór....... samt sem áður æl.
      Risa kvíðahnútur yfir því að vera heima alla daga og öll kvöld og gjörsamlega rotna í þessu blessaða krummaskuði.   Akureyri is way too small for me... og fjarri mínu fólki og mínum vinum.
    Eins og þið sjáið er ég ekki beint bjartsýn né jákvæð á þetta þessa dagana.

 Á miðvikudaginn fer ég til spes læknis vegna þess að öll hormónakerfin hjá mér eru í ólagi í kjölfar þess að ég átti Guðna. Ég ber öll merki um vanvirkni á mörgum stöðum, í kjölfar vanvirks skjaldkyrtils í oflangan tíma án lyfja.
       Það verður gott að láta leiðrétta kerfið þar sem að ég get ekki lést sama hvað skiptir engu máli hversu mikið ég hreyfi mig eða hvað ég borða ekkert breytist og það er út af hormónum og eitthvað sem að vantar...kann ekki að útskýra.
       
     Guðni er kominn með leikskólapláss og byrjar 7 júní eða 9 man ekki.
 Svo finnum við enga dagmömmu handa stelpunum. Allt bara dagmömmur með 1 laust pláss og á fáránlegum tíma. Sem tekur því ekki að vinna á. Eða nákvæmlega engin vinna í boði.
     Sem þýðir það að ég verð heimavinnandi með engar tekjur og engan rétt á atvinuleysisbótum og á eftir gjörsamlega að rotna. Grétar verður vinnandi alla daga og öll kvöld fyrst um sinn svo þetta verður fjandi skemmtileg......
       sorry svartsýnina ég bara nenni þessu ekki
 En more later.

  Regína og Frikki stóðu sig vel hlakka til að fylgjast með á lau.

hafið það gott

kv Inga
  

fjandans miðvikudagur en núna ætti þetta að vera búið.......

05. mars 2008 klukkan 23:04
  Jæja þá er pestin gengin hringinn og ég lá allt gærkvöld við ælufötuna og hálfa nóttina og við vorum orðnar ágætis vinkonur en ég ákvað að slíta þessu pínlega sambandi í morgun.
   Er samt búin að vera ónýt í dag með hausverk og bullandi beinverki og ekki getað gert neitt að viti hér á heimilinu.
        Svo eins og hún Sandra benti á en vildi ekki skelfa mig í kommentinu þá eru stelpurnar búnar að vera að æla núna á hverjum degi. Alls ekki fallegt :(
     í kvöld fóru stelpurnar í fyrsta sinn í balann í bað og sátu og léku sér og skvettu og hlógu. Bara krúttlegastar. Þær líka eru farnar að vera eitthvað erfiðar með að leggja sig á daginn svo þær sofnuðu við eldhúsborðið fyrir matinn. Lofa myndum af því bráðlega, bara krúttlegt.
    En já  páskarnir og tilhlökkunin um ferðina norður verður kannski ekki að miklu.
þið sem eruð viðkvæmir hættið að lesa hér.
      Ég semsagt er ekkert búin að fara á túr síðan eftir a ðég átti stelpurnar og er ennþá byrjuð á einhverju hormónaveseni með sífella kviðverki og ógeð. Svo ég fór til kvennsa í enn eina krabbameinsstrokuna þar sem að það var frumubreyting seinast. Núna var slímhúðin orðin svo rosalega þykk að það þarf að framkalla blæðingu og ég er á lyfjum til þess og þetta verða víst svaðalegar blæðingar og verkir meðfylgjandi og ég efast um að ég hafi nennu né geðheilsu að ferðast og vera annars staðar í því ástandi vil bara vera heima með mitt klósett og bara já heima í mínu rúmi.
    Sé til langar svo norður en æji það kemur í ljós bara.

  

      En já veikindin búin og stærðarinnar þvottahrúga sem að bíður mín á borðinu .

 Ælt að fara að tölvunördast :)

Ætla að koma út úr skápnum............. get ekki meir...........

20. febrúar 2008 klukkan 00:26
Kannski er það ég- kannski þarf ég bara að skilja það að fólk er líka fífl. Við erum mis gróf undir yfirborðinu og erum misgóð í að fela það. Kannski er það bara ég en ég vil trúa því að fólk geti betrumbætt viðhorfin sín. Ég horfi alltaf fyrst á það góða í fólki og reyni að einblína á það fremur en gallana en kannski er það það sem að mun koma mér um koll siðar. Að vera svona græn fyrir grimmdinni í heiminum. Ég af öllum ætti nú kannski að vera búin að troða því inn í hausinn á mér að fólk er grimmt. Að maður þurfi að gá að sér, og hafa varann á. Ég sem hef verið laminn sundur og saman. beitt ofbeldi. verið brotið á andlega og líkamlega á ALLAN HÁTT ætti að vita ansi vel að ekki allt fólk kann að lifa elskandi, annað en sjálft sig. Já ég er hætt að kyngja þessu svo kallaða stolti mínu og reyna að gleyma öllum mínum sársauka....bíta í jaxlinn og bölva í hljóði. Það gerir bara sársaukann meiri og erfiðari að takast á við. Það er erfitt að viðurkenna ekki aðeins fyrir sjálfri mér heldur einnig fyrir öðrum að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. hafa orðið fyrir einelti, og verið ellt uppi og lamin, Ekki var þetta á bætandi en þegar ég eignaðist kærasta sem hélt að hann mætti leggja hendur á mig. Ég var farin að halda að ég væri bara svona ömurleg og að þetta væri nú bara ekkert og var farin að telja mér trú um það að þetta væri bara allt mér að kenna. Ævi mín hefur nú ekki verið dans á rósum og byrjaði löngu áður að vera dans á þyrnum. Þó ég eigi föður sem að hefur ALDREI verið til staðar og já átt mikinn þátt í minni vanlíðan þá get ég ekki annað en umborið hann. Ég á sem betur fer móður sem að hefur hjálpað mér í gegnum allt mitt og staðið við bakið á mér og grátið, hvort sem það er af gleði eða sorg. Ég á tvær yndislegar systur sem að eru bestar í heimi. Ég á mann sem að elskar mig eins og ég er og fékk mig til að vilja vinna úr mínum málum með því að sýna mér að ég er allt annað en ömurleg.Ég á þrjú yndisleg kríli sem að elska mig skilyrðislaust og ég elska þau endalaust og þau gera mig að betri manneskju. Þá vitið þið það. Þetta var nú meira fyrir mig en ykkur. Já nú er ég búin að fá nóg af því að grenja hér við tölvuna og gefa skít í fortíðardraugana og ætla að koma mér í sturtu svo ég geti kúrt með heilsunammið mitt :) og glápt á sjónvarpið :)

Tónlistin flæðir inn í huga mér og fyllir hann tónum....

13. febrúar 2008 klukkan 21:57
Núna upp á síðkastið hef ég veri að sökkva mér í tónlist. Eins og margir vita er það það sem að gjörsamlega bjargar mér frá geðveiki dagsins og heldur í mér vitinu. Og þar sem að eg er svona hálfpartinn nánast lítið sem ekkert ´buin að hlusta á tónlist í meira en ár og algjörlega ekkert inn í þessu þá ákvað ég að sökkva mér aðeins í þetta og kynna mér það sem er í gangi. Og ég er gjörsamlega heilluð af svo  mörgu.

  Það sem að ég hef verið að hlusta á undanfarið ár. Er nú lítið miðað við hvernig ég eyddi dögunum með sjálfri mér fyrir já 4 árum. 

   Þá gjarnan lagðist ég upp í rúm með tónlist á fóninum og starði upp í loftið. Leyfði tónlistinni að fylla hugann tónum  og flytja mig í aðrar víddi, fjarri  öllu stressi, ábyrgð og álagi.

       Ég elska tónlist sem að heillar mig strax við fyrstu tóna. Og einnig lög sem að dáleiða mig og taka mig á sitt vald. Kippa útlimum mínum til og frá í takt og fylla mig einskonar vellíðan.  Tónlist er mitt fíkniefni.  

       Imogen heap er eitt af því sem  ég er að byrja að hlusta á núna og ég er alveg gjörsamlega heilluð.  Lagið Hide and seek fær mig til að finna fyrir einhverjum sársauka sem ég hef byrgt inni.  Ég fæ tár í augun og flýt inn í  einhvern annan heim. Alls ekki á slæman hátt. Þetta er bara eitthvað svo drungalega fallegt. 

      Ég er meira fyrir dramatískari lög en þessi hressu en ég hlusta á allt milli himins og jarðar. Það bara verður að ná að heilla mig. Eitt sem ég meika ekki er metall þar sem er öskrað og æpt og maður skilur ekki orð. Ég fæ verk í hálsinn og stressast upp og fyllist vanlíðan. THats not my cup of tea.


 

   Við hjónin erum búin að finna barnapíu handa okkur. Það er dóttir vinkonu mömmu en hún er sú eina sem ég treysti fyrir gríslingunum minum :)  Hún og vinkona hennar ætla að taka að sér að passa einstaka kvöld sem er æðislegt þar sem maður vill ekki ofnýta sína nánustu :) en nóg í bili

dagurinn í dag eitthvað skárri

09. febrúar 2008 klukkan 14:30
 Varð veik í gærkvöldi og endaði með því að rotast í sofanum.  En dagurinn í dag ætlar að verða eitthvað skárri  Hopefully  ég er allavega ekkert búin að sulla niður eða reka mig í  í dag Svalur
   Grissi er að fara með Guðna Liljar út á snjóþotunni sinni og í búðina. En stelpurnar þótt þær séu dauðþreyttar ætla bara ekkert að lúlla. Jahérna hér
   Ég var víst búin að lofa Ásrúnu að koma með henni á DJ kvöld ( man ekki hvað hann heitir en veit að Ásrúnu finnst hann flottur/hot) .
   og Rétt í þessu hringdi hún og hætti við tónleikana
 Jeij :) ætlum frekar í bíó á PS. I love you.  sem ég las þegar ég var ólétt af Guðna og váá á hún er svo æðisleg. Svo ég er orðin spennt :)
   Ásrún er núna heimilislaus hvolpur eftir að ofninn hjá manninum fyrir ofan hana byrjaði að lega og skemmdi allt loftið hennar og parketið og allt ónýtt ( sem hún var nýbúin að gera upp) svo í nótt gistir hún hjá okkur.  Litli heimalingurinn okkar hehe svona eins og Gunni var :)

      En já jeij bíó hef ekki farið í bíó síðan ég var akureyri í sept.
 Mamma gamla er komin með blogg. Algjör krúttla :)
   En já nóg í bili nýjar myndir á barnalandinu.
 Have a very nice day y´all :)

08. febrúar 2008 klukkan 15:01
  Er að skíta á mig hérna.

 Hálf fúl yfir því að stelpurnar geti ekki bara sofnað og sofið í staðinn fyrir að vera í fullu fjöri þegar þær eiga að sofa og eru ekkert búnar að sofa í dag. 
      Ég var hreinlega að vonast til þess að geta unnið í þessu inntökuverkefni en fæ bara aldrei neinn frið til þess. KVART KVART á kvöldin er það auðvitað börnin sem þarf að sinna líka, fara inn og laga og strjúka og sussa og ég get ekki sleppt því því að grissi minn er svo fastur í Wold of Warcraft að hann getur ekki alltaf staðið upp. svo ég er að pla í því á sunkv að fara til múttu minnar og vera þar bara og vinna í iþessu svo ég fái frið.
          Dagurinn í dag gengur allur á afturfótunum. Ég er missandi allt í gólfið og rekandi mig í. Svo er ég farin i bakinu og já kvart dagur í dag.
     En já það er nú að koma helgi og það er nú plús. í því :)

right right, you gotta love that!

31. janúar 2008 klukkan 11:08


úff ég er sko búin að vera alveg hræðilegur bloggari upp á síðkastið eða kannski ögn lengur en það.
Alltaf þegar ég hef eitthvað mikilvægt að segja þá er ég að gera eitthvað annað og kemst ekki í það að skrifa það niður. Og svo þegar ég kemst í það að slappa af og hugsanlega drita nokkrum orðum hér inn, þá er ég búin að gleyma því.
Léleg. En svona er að vera með stórt heimili.
Her ur heimunum er bara allt gott að frétta. Vonumst eftir því að komast norður um páskana að hitta okkar ástkæru vini og börnin sem hafa fæðst og við ekki enn búin að fá að knúsa.
Og auðvitað að hitta hana Úrsulu krúsí músina okkar. Sem kemur líklega í febrúar en maður sér hana nú sko aldrei nógu oft :)
Það er brjálað að gera hjá mínum heitt elskaða í vinnunni. Hann er orðinn svo ómissandi að síminn er hringjandi allt kvöldið og hann svarandi spurningum frá starfsmönnum..
Ég er búin að vera hrikalega dugleg að fara út upp á síðkastið og fór í glimmer/límmiða/stelpupartý seinasta föstudag. Það var fróðlegt og mjög skemmtilegt bara. Um leið og ég kom inn úr dyrunum hjá Ásrúnu voru límdir á mig límmiðar og sett á mig aukalega glimmer. Við fórum niður í bæ á Vegamót og síðan fórum ég og Ásrún á hlölla og heim til hennar. Vorum komnar um hálf fjögur þar sem að okkur fannst bara ekkert spes í bænum og bara þreyttar eitthvað. . Við vorum sofnaðar fjögur.
Börnin- þau eru yndisleg eins og alltaf. Gætum ekki verið heppnari með börn. Litlu dömurnar eru farnar núna að sofa snemma á kvöldin og sofa alla nóttina nema einstöku sinnum vakna til að láta snúa sér eða fá pela ( Ólöf þar að segja) þær borða alveg 4 máltíðir á dag fyrir utan pelana og bara stækka og þroskast.
Ólöf er farin að skríða pínu. og Lilja svona ennþá að rugga sér fram og til baka og finna jafnvægið.
Guðni Liljar hefur bara orð á öllu gjörsamlega bara talar og talar. Kann hellings af lögum og er byrjaður að djóka. Hryllilega fyndinn. Og já barnið skilur þó nokkra ensku og kann nokkur orð. Pælið í því. Ekki lærir hann þetta heima heldur á leikskólanum.
Ég er að sækja um í námskeið/ fagnám. sem tekur ca 1 og hálft ár. Og er inntökuverkefnið flókið og mikið. það komast bara átta inn heðan frá íslandi en ég geri mitt besta. Bara orðin svolítið ryðguð í enskunni. Bæði þá að tala hana og skrifaþ

En nóg í bili ætla að fara að gera eitthvað af viti.


Klukkan

...........................................

Fake People

Kvóti dagsins

NÝTT-------------- NÝTT
7.nóvember 2007

"People need dreams, there's as much nourishment in 'em as food."

-- Dorothy Gilman

6. nóvember 2007

"To love oneself is the beginning of a lifelong romance."

-- Oscar Wilde

Ég í mýflugumynd

Lýstu þér með orðum: Ljóshærð , með litað dökkt hár

Ertu ástfangin: upp fyrir haus og alveg niður að tám

Hefuru valdið ástarsorg: já því miður

Stjörnumerki: Naut

Skóli: LÍfsins eins og er


Tatto/göt: 6 göt fyrir utan þessi náttúrulegu og 1 tattoo

Hvernig bíl áttu: Chevrolet Town & Country

Maki: Grétar Örn

Börn: Guðni Liljar Grétarsson , Lilja Guðrún og Ólöf María Grétarsdættur og svo eina stjúpdóttur Úrsulu Nótt

Þáttur: Lost, my name is Earl, CSI, Despirate houswifes, Anna Phil, Heroes, Grace Anatomy

Bók: Í fylgd með fullorðnum, Alkemistinn

Dýr: Hestar, Hundar

Matur: Pizza ela Grétar

Besti drykkur: vatn, 7up

Hvað er það fyrsta sem heillar þig í fari kk: augun, hárið, rassinn, húmorinn, brosið, hvernig hann ber sig, heiðarleiki og húmor fyrir sjálfum sér og lífinu

Hvort er það ljóshærðir eða dökkhærðir strákar: Hef bara aldrei verið með ljóshærðum gaur svo það segir eitthvað

Uppáhaldsstelling: Þær eru svo margar! sef alltaf á hliðinni,

Hvort hringiru í fólk eða sendir sms: mér finnst hryllilega leiðinlegt að tala í símann, er frekar feimin svo sms var mitt thing, nú er ég of löt þannig ég hringi eða e-maila :)

Hefuru logið: jájá er mannleg, oftast bara tilgangslausar lygar svo aðstæður verði ekki óþægilegar fyrir mig, sjálfselska í mér :)

Hefuru brotið bein: haha já, er rosalegur klaufi

Trúir þú á guð eða geimverur: Trúi á mátt mér æðri , kalla hann Guð þótt Guð heiti Jave eða Jehova! Túlka hann samt á minn hátt, stunda ekki trúarbrögð

Trúir þú á stjörnuspár: nei en það er stundum gaman að lesa þær

Hvort væriru til að þér yrði gefið nammi eða blóm: bæði saman það klikkar ekki! en væri sáttust við risa vönd og melónu:) er að reyna að hætta í namminu

Hávaði eða næði: fer eftir aðstæðum og þreytu magni!

Hver fær þig til í að hlægja mest: Grétar, Guðni Liljar og svo Biggi fændi hans Grétars, djöfull fyndin gaur

Hefuru óskað þess að þú værir önnur en þú ert: Já of oft! Er svona að ná sáttum við mig í dag! ( samningaviðræður í gangi)

Hefuru grátið vegna einhvers sem hefur sært þig: já í marga mánuði og ár

Hefuru séð eftir einhverju sem þú hefur gert: Já

Hvað er það? Þoriru að tjá þig: búin að gera það upp svo óþarfi að nefna það hér

Hver er þinn helsti ótti: hátt fall- drukkna

Helstu gallar: þrjósk, stundum löt, elska að sofa!

Í hverju sefuru: Evu klæðunum

Talaru mikið: misjafnt stundum blaðra ég svo mikið að ég fæ bara leið á röddinni á mér. Stundum blaðra ég ómerkilega huti þegar ég er feimin eða stressuð. Annars finnst mér líka gott að þegja bara

Ertu ánægð með nafnið þitt: tja jájá

Hlustaru á tónlist daglega: já

Tekuru lyf: skjaldkyrtilslyf og þarf að gera það alla mína ævi

Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir: Bíða, þvo potta og pönnur

Hvað áttu mörg skó pör: ekki nóg

Teluru þig vera rómantíska manneskju: algjörlega

Hvort finnst þér betra að fara á fín veitingarhús eða matsölustaði: bæði gott í hófi! Annars finnst mér langs notalegast að borða heima eldaðan ljúffengan mat :) í góðra vina hópi

Hvað er það fyrsta sem þú hugsar þegar þú vaknar á morgnanna: er strax komið að næstu gjöf. ég var að sofna...

Ertu hamingjusöm: jáhá...... það er ég sko :)

Hvar ætlaru að eyða ellinni: ferðast um heiminn á húsbíl

Hvort er það sundbolur eða bikiní: ég er svo gatslitin á maganum eftir óléttuna svo að sjálfsögðu er það sundbolur svona af tilliti við ykkur hin!

Uppáhalds hlutur: myndavélin

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...